Fólk07. júní 2022

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög í júní 2022

Alls voru 228.466 einstaklingur skráður í þjóðkirkjuna þann 1. maí sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 800 einstaklinga síðan 1. desember 2021.

 

Alls voru 228.373 einstaklingur skráður í þjóðkirkjuna þann 1. júní sl.  skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 893 einstaklinga síðan 1. desember 2021.  

Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.722 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 15 á áðurnefndu tímabili eða um 0,1%. 

Fjölgað mest í Siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 256 meðlimi, sem er 5,5% fjölgun.  Mest hlutfallsleg fjölgun var í ICCI trúfélagi um 27,9% en nú eru 321 meðlimir skráðir í félaginu. 

Alls voru 29.538 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,8% landsmanna.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. júní sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2020 og 2021. 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar