Fólk14. júní 2022

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í júní 2022

Alls voru 58.089 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júní sl. og fjölgaði þeim um 3.110 frá 1. desember 2021 eða um 5,7%.

 
Alls voru 58.089 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júní sl. og fjölgaði þeim um 3.110 frá 1. desember 2021 eða um 5,7%.   

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 411,3% frá 1. desember sl. og voru þann 1. júní sl. 1.222 úkraínskir ríkisborgarar skráðir í þjóðskrá. 
Sömuleiðis hefur verið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Venesúela eða um 53,0% og eru nú 696 einstaklingar með venesúelskt ríkisfang búsettir hér á landi.  

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 568 einstaklinga og voru 21.759 talsins um síðustu mánaðarmót eða 2,7% landsmanna og rúmenskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 283 eða um 10,3%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019-2021 og 1. júní sl. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar