Fasteignir21. júní 2022

Mánaðarleg fasteignavelta í maí 2022

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í síðasta mánuði samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.144 og var upphæð viðskiptanna um 76,9 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar maí 2022 er borinn saman við apríl 2022 fjölgaði kaupsamningum um 28,3% og velta hækkaði um 14,6%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði samningum um 29% á milli mánaða en velta hækkaði um 17,2%.

Fasteignavelta í milljónum króna

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
76.935
19.122
42.447
14.161
911
297
Þar af höfuðborgarsvæðið
56.506
10.889 33.454 12.059 65 39

Fjöldi kaupsamninga

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
1144
235
751
117
32
9
Þar af höfuðborgarsvæðið
667
76
524
63
2
2

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar