Fólk04. júlí 2022

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - júlí 2022

íbúum í Reykjanesbæ hefur fjölgað nokkuð hressilega frá 1. desember sl. um 925 íbúa eða um 4,5%

 

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.401 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2021 til 1. júlí 2022 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði um 363 íbúa á sama tímabili.  Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 128 íbúa  og í Reykjanesbæ hefur fjölgað nokkuð hressilega á umræddu tímabili eða  um 925 íbúa eða um 4,5%. 

Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna sjö mánuði eða um 15,0% en sökum smæðar sveitarfélagsins þá fjölgaði íbúum þar þó aðeins um 9 íbúa.   

Fjölgar í öllum landshlutum nema Norðurlandi vestra
Íbúum fjölgar í öllum landshlutum. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 3,8% sem er fjölgun um 1.108 íbúa. Íbúum á Suðurlandi fjölgaði um 2,1% á tímabilinu eða um 681 íbúa.  Lítilsháttar fækkun var á Norðurlandi vestra eða um 30 íbúa sem gerir 0,4% fækkun.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019 - 2021.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar