Fasteignir20. júlí 2022

Vísitala leiguverðs í júní 2022

Vísitala leiguverðs íbúðarhúsnæðis er 219 stig í júní 2022 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,8% frá fyrri mánuði.

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 219 stig í júní 2022 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,8%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Fasteignagátt Þjóðskrár.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í júní 2022.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 697 samningar, sem þinglýst var í júní 2022. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júní 2022 eru því unnar upp úr 924 leigusamningum sem þinglýst var í júní og júlí 2022.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júní 2022 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 4614 3308 3199 2490
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 4413 3379 2939 2598
Kópavogur 4164 3144 2479 2301
Garðabær og Hafnarfjörður 5253 2938 2492 2317
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur 4214 3268 2621 2512
Breiðholt 4176 3004 2526 2360
Kjalarnes og Mosfellsbær 4185 - 2536 2446
Suðurnes - 2772 1949 1883
Vesturland - 2052 2007 1896
Vestfirðir - - 1682 1730
Norðurland nema Akureyri 3612 1575 2020 1200
Akureyri 3345 2374 2114 2108
Austurland - - 1949 -
Suðurland 3789 2282 1911 1825

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar