Fasteignir25. júlí 2022

Mánaðarleg fasteignavelta í júní 2022

Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1217 og var upphæð viðskiptanna um 92,5 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Kaupsamningum fækkar um 4,7% en velta hækkaði um 9,9%.

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í síðasta mánuði samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var  1217 og var upphæð viðskiptanna um 92,5 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar júní 2022 er borinn saman við maí 2022 fækkaði kaupsamningum um 4,7% en velta hækkaði um 9,9%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 3,6% á milli mánaða en velta hækkaði um 11,1%. 

Fasteignavelta í milljónum króna

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
92.516
20.742
47.204
20.804
1.568
2.201
Þar af höfuðborgarsvæðið
67.931
9.993 37.986 19.093 40 819

Fjöldi kaupsamninga

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
1.217
274
740
120
55
28
Þar af höfuðborgarsvæðið
687
79
522
76
5
5

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar