Þjóðskrá23. ágúst 2022

Mánaðarleg fasteignavelta í júlí 2022

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í síðasta mánuði samkvæmt þinglýstum gögnum.

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í síðasta mánuði samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var  972 og var upphæð viðskiptanna um 64 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar júlí 2022 er borinn saman við júní 2022 fækkaði kaupsamningum um 23,6% og velta lækkaði um 33,5%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 24,0% á milli mánaða og velta lækkaði um 37,6%.

Fasteignavelta í milljónum króna

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
63.962
17.785
35.405
6.159
1.442
3.174
Þar af höfuðborgarsvæðið
43.929
9.478 26.773 4.920 199 2.560

Fjöldi kaupsamninga

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
972
221
604
87
44
16
Þar af höfuðborgarsvæðið
542
73
397
60
8
4

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar