Fólk29. ágúst 2022

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar

Fyrstu fimm mánuði ársins gengu 1.258 einstaklingar í hjúskap sem er aukning frá síðasta ári en þá gegnu 1.030 einstaklingar í hjúskap.

 
Hjúskapur
Af þeim 270 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í maímánuði gengu 106 í hjúskap hjá sýslumanni eða 39,3%, 106 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 39,3% og 42 einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trú- eða lífsskoðunarfélagi eða 15,6% og loks gengu 16 einstaklingar í hjúskap erlendis.
Fyrstu fimm mánuði ársins gengu 1.258 einstaklingar í hjúskap sem er aukning frá síðasta ári en þá gegnu 1.030 einstaklingar í hjúskap. 

Skilnaðir
Alls skildu 88 einstaklingar sem eru skráðir í þjóðskrá í maí sl. Þar af gengu 84 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni og 4 gengu frá lögskilnaði sínum fyrir dómi. 

Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2022. 

Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar til Þjóðskrár Íslands.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar