Fólk06. október 2022

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. október 2022

Alls voru 227.828 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. október sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.438 síðan 1. desember 2021.

 

Alls voru 227.828 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. október sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.438 síðan 1. desember 2021.

Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.730 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 7 á áðurnefndu tímabili.

Fjölgað mest í Siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið að venju mest í Siðmennt eða um 586 meðlimir, sem er 12,7% fjölgun. Mest hlutfallsleg fjölgun var í ICCI trúfélagi, eða um 49,4%, en nú eru 375 meðlimir skráðir í félagið. Einnig varð töluverð hlutfallsleg fjölgun í trúfélaginu Hjálpræðisherinn um 29,1%, en nú eru skráðir 204 meðlimir í félagið.

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 29.727 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,8% landsmanna. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 69.998 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020 og 2021.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar