Fólk11. nóvember 2022

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. nóvember 2022

Alls voru 227.641 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. nóvember sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.625 síðan 1. desember 2021.

 

Alls voru 227.641 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. nóvember sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.625 síðan 1. desember 2021. Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.753 skráða meðlimi og hefur þeim fjölgað um 16 á áðurnefndu tímabili.

Fjölgað mest í Siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið að venju mest í Siðmennt eða um 654 meðlimir, sem er 14,2% fjölgun. Mest hlutfallsleg fjölgun var í ICCI trúfélagi, eða um 57,4%, en nú eru 395 meðlimir skráðir í félagið. Einnig varð töluverð hlutfallsleg fjölgun í trúfélaginu Hjálpræðisherinn um 28,5%, en nú eru skráðir 203 meðlimir í félagið.

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 29.773 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,7% landsmanna. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 71.186 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020 og 2021.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar