Fólk18. nóvember 2022

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í byrjun nóvember 2022

Alls voru 63.757 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. nóvember sl. og fjölgaði þeim um 8.780 frá 1. desember 2021 eða um 16,0%.

 

Alls voru 63.757 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. nóvember sl. og fjölgaði þeim um 8.780 frá 1. desember 2021 eða um 16,0%. Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 784,5,% frá 1. desember sl. og voru í byrjun mánaðarins alls 2.114 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 1.875 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Venesúela eða um 160,0% á umræddu tímabili og eru nú 1.185 einstaklingar með venesúelskt ríkisfang búsettir hér á landi. Einnig fjölgar rúmenskum ríkisborgurum töluvert þ.e. um 809 einstaklinga eða um 29,4%

Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 1.951 einstaklinga eða um 9,2% og eru pólskir ríkisborgarar nú 6,0% landsmanna. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.443 einstaklinga eða um 0,4%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2019-2021 og 1. nóvember sl.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar