Fólk22. nóvember 2022

Kosningaréttur íslenskra ríkisborgara sem búsettir eru erlendis

Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa haft lögheimili erlendis skemur en í 16 ár eða frá 1. desember 2006, eru sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi í Alþingiskosningum, við forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslur. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.

Íslenskir ríkisborgarar sem hafa haft lögheimili erlendis lengur en í 16 ár, þ.e. hafa flutt frá Íslandi fyrir 1. desember 2006 verða að sækja um til Þjóðskrár Íslands um að verða teknir á kjörskrá í Alþingiskosningum, við forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslur. Umsókn þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Umsækjandi verður að hafa íslenskan ríkisborgararétt.
  • Umsækjandi verður að vera 18 ára eða eldri á kjördag.
  • Umsækjandi þarf einhvern tíma á ævinni að hafa átt lögheimili á Íslandi.

Fullnægjandi umsókn þarf að hafa borist Þjóðskrá Íslands fyrir 1. desember 2022. Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi skráður á kjörskrá til næstu fjögurra ára á eftir.

Hér má lesa nánar um kosningar og kosningarétt

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar