Þjóðskrá07. desember 2022

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. desember 2022

Alls voru 227.471 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. desember sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.795 síðan 1. desember 2021. Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.853 skráða meðlimi og hefur þeim fjölgað um 116 á áðurnefndu tímabili.

Fjölgað mest í Siðmennt

Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið að venju mest í Siðmennt eða um 732 meðlimir, sem er 15,8% fjölgun. Mest hlutfallsleg fjölgun var í ICCI trúfélagi, eða um 62,9%, en nú eru 409 meðlimir skráðir í félagið. Einnig varð töluverð hlutfallsleg fjölgun í trúfélaginu Hjálpræðisherinn um 51,9%, en nú eru skráðir 240 meðlimir í félagið.

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 29.727 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,7% landsmanna. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 69.998 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020 og 2021.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar