Fólk10. janúar 2023

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í janúar 2023

Alls voru 65.118 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. janúar sl. og fjölgaði þeim um 533 frá 1. desember 2022 eða um 0,8%.

 

Alls voru 65.118 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. janúar sl. og fjölgaði þeim um 533 frá 1. desember 2022 eða um 0,8%.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 11,3,% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 2.521 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 256 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Rúmeníu eða um 48 einstaklinga á umræddu tímabili og eru nú 3.671 einstaklingar með rúmenskt ríkisfang búsettir hér á landi.  Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 49 einstaklinga eða um 0,2% og eru pólskir ríkisborgarar nú 23.345.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 131 einstaklinga. Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. janúar 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022 .

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

 
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar