Fólk07. febrúar 2023

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum í febrúar 2023

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 601 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. febrúar 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 99 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fækkaði á tímabilinu um 18 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 159 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 88 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Kaldraneshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Kaldraneshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðinn mánuð eða um 6,2% en íbúum þar fjölgaði um 7 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Skorradalshreppi eða 5,2% en þar fjölgaði íbúum um 3 einstaklinga síðastliðinn mánuð.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 19 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 45 sveitarfélögum.

Fækkar á Norðurlandi

Íbúum fjölgar eða stendur í stað í öllum landshlutum nema á Norðurlandi Vestra, þar fækkar um 0,3% eða 23 íbúa. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 0,8% sem er fjölgun um 257 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 1380 frá 1. desember 2022 til. 1. febrúar 2023 sem er um 0,4%. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022. Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar