Fólk09. febrúar 2023

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. febrúar 2023

Alls voru 227.072 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. febrúar sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 194 síðan 1. janúar 2023. Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.913 skráða meðlimi og hefur þeim fjölgað um 44 á áðurnefndu tímabili.

 

Alls voru 227.072  einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. febrúar sl. skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 194 síðan 1. febrúar 2023. Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.913 skráða meðlimi og hefur þeim fjölgað um 44 á áðurnefndu tímabili.

Fjölgað mest í Siðmennt

Frá 1. febrúar sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 52 meðlimir, sem er um 1% fjölgun en næst mest í Kaþólsku kirkjunni eða um 44 meðlimir, sem er um 1% fjölgun. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá lífskoðunarfélaginu DíaMat, eða um 7,2%, en nú eru 194 meðlimir skráðir í félagið.  

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.000 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,7% landsmanna. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 73.376 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020-2022. Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar