Fólk13. apríl 2023

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. apríl 2023

Alls voru 226.776 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. apríl síðast liðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 693 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.965 skráða meðlimi og í þriðja sæti er yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.937 skráða meðlimi.

 

Alls voru 226.776 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. apríl síðast liðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 693  síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.965 skráða meðlimi og hefur þeim fjölgað um 116 á áðurnefndu tímabili. Í þriðja sæti er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.937 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 16 frá 1. desember 2022.

Fjölgað mest í Siðmennt

Frá 1. desember 2022 til 1. apríl 2023 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélagi verið mest í Siðmennt eða um 184 meðlimir, sem er um 3,4% fjölgun en næst mest í Kaþólsku kirkjunni eða um 116 meðlimi, sem er um 0,8% fjölgun. Einnig er töluverð fjölgun meðlima í Ásatrúarfélagið en þar hefur fjölgað um 100 meðlimi frá 1. desember 2022 eða um 1,7%. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá lífsskoðunarfélaginu Lífspekifélag Íslands, eða um 55,2%, en nú eru 45 meðlimir skráðir í félagið. 

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.148 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,7% landsmanna. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 75.156 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar