Þjóðskrá28. apríl 2023

Þjóðskrá er gestgjafi fundar tæknihóps Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO)

Þjóðskrá er virkur þátttakandi í alþjóðastarfi í tengslum við útgáfu vegabréfa. Dagana 26. - 28. apríl er Þjóðskrá gestgjafi fundar tæknihóps Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO) sem haldin er í Reykjavík.

Flottur hópur fulltrúa úr tæknihópi Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO) er nú staddur hér á landi. 

Fulltrúar 15 þjóðríkja sitja fundinn, ásamt fulltrúum frá 5 alþjóðastofnunum: Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Alþjóða flugmálastofnunin (ICAO), Alþjóðasamband flugfélaga (IATA), Alþjóðlega staðlastofnunin (ISO) og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (OECE). Fleiri þátttakendur taka einnig þátt í fjarfundi.

Efni fundarins er tæknileg þróun ferðaskilríkja og er meðal annars fjallað um stafræn ferðaskilríki, sem eru í raun vegabréf í síma eða snjalltæki og þróun nafnskírteina sem ferðaskilríkja.

Frumvarp um ný nafnskírteini er nú til umfjöllunar hjá Alþingi.

Þjóðskrá tekur virkan þátt í þessu starfi til að hafa áhrif á framtíðarkröfur til ferðaskilríkja og vera betur í stakk búin að innleiða þær vel og tímanlega.

Það eru spennandi tímar framundan.

Hér má sjá þennan flotta hóp


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar