Fólk16. maí 2023

Flutningur innanlands í apríl 2023

Alls skráðu 3.590 einstaklingar flutning innanlands í apríl til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði eða um 10,7% þegar 4.022 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári var fækkunin um 11,8% en þá skráðu 4.068 einstaklingar flutning innanlands.

Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.337 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 1.999 einstaklingar innan svæðisins.

Á Suðurnesjum fluttu 351 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 210innan landshlutans og 113 til höfuðborgarsvæðisins.

Á Suðurlandi fluttu 249lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 185 innan landshlutans en 39 til höfuðborgarsvæðisins.

Flutningur innan og milli landshluta

Frá / til Höfuðborgar- svæðið Suðurnes Vesturland Vestfirðir Norðurland-
vestra
Norðurland-
eystra
Austurland Suðurland Alls frá
Höfuðborgarsvæðið 1.999 105 62 25 7 29 20 90 2.337
Suðurnes 113 210 15 1 0 7 0 5 351
Vesturland 26 2 91 3 1 2 6 3 134
Vestfirðir 10 2 0 34 2 3 3 1 55
Norðurland-Vestra 7 2 0 0 55 3 0 1 68
Norðurland-Eystra 27 0 2 1 5 238 8 4 285
Austurland 15 1 1 1 0 4 88 1 111
Suðurland 39 8 3 2 1 8 3 185 249
Alls til 2.236 330 174 67 71 294 128 290 3.590

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar