Fólk15. júní 2023

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi 1. júní 2023

Alls voru 69.593 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júní sl. og fjölgaði þeim um 5.008 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 7,8%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 793 einstaklinga eða um 0,2%.

 

Alls voru 69.593 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júní sl. og fjölgaði þeim um 5.008 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 7,8%.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 40,6% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 3.184 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 919 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Rúmeníu eða um 12,4% sem eru 451 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 4.074 einstaklingar með rúmenskt ríkisfang búsettir hér á landi. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 1.449 einstaklinga eða um 6,2% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 24.745 samtals.

Einnig er áhugavert að skoða hlutfallslega fjölgun frá 1. desember 2022 til 1. júní, þar ber að nefna að hlutfallslega fjölgun frá Belarús er 50% sem er fjölgun um 15 einstaklinga og hlutfallsleg fjölgun frá Líbanon er 44,4% sem er fjölgun um 4 einstaklinga.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 793 einstaklinga eða um 0,2%. Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. júní 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.  
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar