Fólk20. júní 2023

Flutningur innanlands í maí 2023

Alls skráðu 4.105 einstaklingar flutning innanlands í maí til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 14,3% þegar 3.590 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári var fækkunin um 18,1% en þá skráðu 5.014 einstaklingar flutning innanlands.

Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.588 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.243 einstaklingar innan svæðisins.

Á Suðurnesjum fluttu 412 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 247 innan landshlutans og 124 til höfuðborgarsvæðisins.

Á Suðurlandi fluttu 302 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 219 innan landshlutans en 52 til höfuðborgarsvæðisins.

Flutningur innan og milli landshluta

Frá / til Höfuðborgar- svæðið Suðurnes Vesturland Vestfirðir Norðurland-
vestra
Norðurland-
eystra
Austurland Suðurland Alls frá
Höfuðborgarsvæðið 2.243 97 59 25 14 38 19 93 2.588
Suðurnes 124 247 10 6 1 14 2 8 412
Vesturland 56 4 109 4 1 4 2 8 188
Vestfirðir 24 3 3 34 0 2 0 3 69
Norðurland-Vestra 18 2 3 1 61 9 0 1 95
Norðurland-Eystra 29 6 1 6 5 270 6 18 341
Austurland 20 1 2 0 0 13 69 5 110
Suðurland 52 7 8 1 4 9 2 219 302
Alls til 2.566 367 195 77 86 359 100 355 4.105

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar