Fólk06. júlí 2023

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. júlí 2023

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.250 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. júlí 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 389 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 190 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.023 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 270 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2022 um 15,2% en íbúum þar fjölgaði um 17 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Mýrdalshreppi eða 7,5% en þar fjölgaði íbúum um 66 einstaklinga frá 1. desember 2022.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 10 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 54 sveitarfélögum.

Fjölgar í öllum landshlutum

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum miðað við 1. desember 2022. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 3,9% sem er fjölgun um 1.222 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 6.784 frá 1. desember 2022 til. 1. júlí 2023 sem er um 1,8%. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar