Fólk11. júlí 2023

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. júlí 2023

Alls voru 226.633 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. júlí síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 836 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.077 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.936 skráða meðlimi.

Fjölgað mest í Siðmennt

Frá 1. desember 2022 til 1. júlí 2023 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélagi verið mest í Siðmennt eða um 284 meðlimi, sem er um 5,3% fjölgun en næst mest í Kaþólsku kirkjunni um 228 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá lífsskoðunarfélaginu Lífspekifélag Íslands, eða um 82,8%, en nú eru 53 meðlimir skráðir í félagið. 

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.343 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 1,8% hækkun frá 1.des 2022. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 78.323 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar