Fólk05. október 2023

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. október 2023

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 3.098 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. október 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 628 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 295 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.278 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 485 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2022 um 13,4% en íbúum þar fjölgaði um 15 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Sveitarfélaginu Vogar eða 10,7% en þar fjölgaði íbúum um 149 einstaklinga frá 1. desember 2022.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 9 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 55 sveitarfélögum.

Fjölgar í öllum landshlutum

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum miðað við 1. desember 2022. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 5,2% sem er fjölgun um 1.621 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 9.676 frá 1. desember 2022 til. 1. október 2023 sem er um 2,5%. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar