Fólk10. október 2023

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. október 2023

Alls voru 226.214 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. október síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 1.255 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.144 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.939 skráða meðlimi.

Fjölgað mest í Siðmennt

Frá 1. desember 2022 til 1. október 2023 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélagi verið mest í Siðmennt eða um 405 meðlimi, sem er um 7,6% fjölgun en næst mest í Kaþólsku kirkjunni um 295 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá lífsskoðunarfélaginu Lífspekifélag Íslands, eða um 172%, en nú eru 79 meðlimir skráðir í félagið. 

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.458 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 2,2% hækkun frá 1.des 2022. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 81.156 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar