Fólk07. nóvember 2023

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. nóvember 2023

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 3.457 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. nóvember 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 738 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 292 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.252 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 590 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Eyja- og Miklaholtshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2022 um 13,4% en íbúum þar fjölgaði um 15 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Sveitarfélaginu Vogar eða 11,4% en þar fjölgaði íbúum um 159 einstaklinga frá 1. desember 2022.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 10 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 54 sveitarfélögum.

Fjölgar í öllum landshlutum

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum miðað við 1. desember 2022. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 5,2% sem er fjölgun um 1.608 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 10.595 frá 1. desember 2022 til. 1. nóvember 2023 sem er um 2,7%. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar