Fólk14. nóvember 2023

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi 1. nóvember 2023

Alls voru 73.638 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. nóvember sl. og fjölgaði þeim um 9.053 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 14%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.542 einstaklinga eða um 0,5%.

 

Alls voru 73.638 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. nóvember sl. og fjölgaði þeim um 9.053 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 14%.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 65,7% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 3.752 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 1.487 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Palestínu eða um 63,2% sem eru 196 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 506 einstaklingar með palestínskt ríkisfang búsettir hér á landi. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 2.223 einstaklinga eða um 9,5% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 25.519 samtals.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.542 einstaklinga eða um 0,5%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. nóvember 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

 

Þróun erlendra ríkisborgara

 

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.  
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar