Fólk16. nóvember 2023

Flutningur innanlands í október 2023

Alls skráðu 4.554 einstaklingar flutning innanlands í október til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 1,6% þegar 4.482 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan nánast sú sama þegar 4.557 einstaklingar skráðu flutning innanlands.

Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.736 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.375 einstaklingar innan svæðisins.

Á Suðurnesjum fluttu 548 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 363 innan landshlutans og 129 til höfuðborgarsvæðisins.

Á Suðurlandi fluttu 359 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 248 innan landshlutans en 85 til höfuðborgarsvæðisins.

Flutningur innan og milli landshluta

Frá / til Höfuðborgar- svæðið Suðurnes Vesturland Vestfirðir Norðurland-
vestra
Norðurland-
eystra
Austurland Suðurland Alls frá
Höfuðborgarsvæðið 2.375 122 37 18 9 55 14 106 2.736
Suðurnes 129 363 12 2 0 10 5 27 548
Vesturland 30 5 146 3 0 2 0 11 197
Vestfirðir 22 1 4 64 0 4 0 1 96
Norðurland-Vestra 18 0 1 0 53 3 0 1 76
Norðurland-Eystra 62 5 0 5 4 349 8 8 441
Austurland 14 4 0 2 1 2 74 4 101
Suðurland 85 13 1 1 0 8 3 248 359
Alls til 2.735 513 201 95 67 433 104 406 4.554

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar