Fólk12. desember 2023

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. desember 2023

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 3.801 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. desember 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 773 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 301 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.293 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 627 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Sveitarfélaginu Vogar

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Sveitarfélagsins Vogar fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2022 um 12,3% en íbúum þar fjölgaði um 172 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Eyja- og Miklaholtshrepp eða 11,6% en þar fjölgaði íbúum um 13 einstaklinga frá 1. desember 2022.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 9 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 55 sveitarfélögum.

Fjölgar í öllum landshlutum

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum miðað við 1. desember 2022. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 5,3% sem er fjölgun um 1.651 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 11.465 frá 1. desember 2022 til. 1. desember 2023 sem er um 3%. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar