Fólk04. janúar 2024

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. janúar 2024

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 175 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2023 til 1. janúar 2024 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 50 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fækkaði á tímabilinu um 27 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 41 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 7 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Skagabyggð

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skagabyggðar fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2023 um 5,8% en íbúum þar fjölgaði um 5 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Ásahreppi eða 2,8% en þar fjölgaði íbúum um 9 einstaklinga frá 1. desember 2023.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 22 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 42 sveitarfélögum.

Lítil breyting þegar horft er á landshluta

Aðeins er smávægileg fjölgun í þremur af átta landshlutum frá 1. desember sl. Aðrir landshlutar annaðhvort standa í stað eða fækkar lítillega. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2023.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar