Fólk09. janúar 2024

Skráning í trú - og lífsskoðunarfélög fram til 1. janúar 2024

Alls voru 225.854 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. janúar síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 48 síðan 1. desember 2023. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.319 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.977 skráða meðlimi.

Fjölgað mest í Siðmennt og Fríkirkjunni í Reykjavík

Frá 1. desember 2023 til 1. janúar 2024 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Siðmennt og Fríkirkjunni í Reykjavík eða um 19 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá Fjölskyldusamtökum heimsfriðar og sameiningar, eða um 6,3%.

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.578 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 0,4% hækkun frá 1.des 2023. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 83.109 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2021-2023.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar