Fólk17. janúar 2024

Flutningur innanlands í desember 2023

Alls skráðu 3.789 einstaklingar flutning innanlands í desember til Þjóðskrár. Þetta er fækkun frá síðasta mánuði eða um 10% þegar 4.209 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fækkun uppá 3,7% þegar 3.933 einstaklingar skráðu flutning innanlands.

Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 2.516 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.251 einstaklingar innan svæðisins.

Á Suðurnesjum fluttu 409 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 245 innan landshlutans og 129 til höfuðborgarsvæðisins.

Á Suðurlandi fluttu 266 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 169 innan landshlutans en 73 til höfuðborgarsvæðisins.

Flutningur innan og milli landshluta

Frá / til Höfuðborgar- svæðið Suðurnes Vesturland Vestfirðir Norðurland-
vestra
Norðurland-
eystra
Austurland Suðurland Alls frá
Höfuðborgarsvæðið 2.251 94 27 20 13 27 14 70 2.516
Suðurnes 129 245 2 1 0 8 3 21 409
Vesturland 24 3 99 0 1 2 0 6 135
Vestfirðir 15 0 8 41 0 2 2 1 69
Norðurland-Vestra 15 0 1 0 27 2 0 0 45
Norðurland-Eystra 33 0 1 0 4 194 9 5 246
Austurland 26 2 0 0 0 2 66 7 103
Suðurland 73 8 8 0 1 4 3 169 266
Alls til 2.566 352 146 62 46 241 97 279 3.789

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar