Þjóðskrá29. janúar 2024

Þjóðskrá auglýsir starf fulltrúa í skilríkjadeild

Þjóðskrá leitar að metnaðarfullum einstaklingi með ríka þjónustulund á sviði Þjónustu hjá stofnuninni.

Viðkomandi mun starfa með sterku teymi þvert á stofnunina að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að framleiðslu skilríkja, m.a. vegabréfa, nafnskírteina og dvalarleyfiskorta. Í starfinu felast mikil samskipti við helstu samstarfsaðila stofnunarinnar.

Þjóðskrá leggur áherslu á góða þjónustu og nýtingu stafrænna lausna og mikilvægt er að umsækjendur samsami sig þeirri sýn. Verkefnin eru krefjandi og kalla á frumkvæði og lausnamiðaða hugsun sem viðkomandi mun taka þátt í að móta hjá stofnuninni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Framleiðsla vegabréfa og annarra skilríkja.
  • Svörun erinda í síma og tölvupósti.
  • Skráningar í kerfum Þjóðskrár.
  • Innleiðing og mótun stafrænna lausna.
  • Þátttaka í umbótastarfi.

 

Nánari upplýsingar


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar