Fólk05. febrúar 2024

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. febrúar 2024

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 496 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2023 til 1. febrúar 2024 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 153 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fækkaði á tímabilinu um 40 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 86 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 45 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2023 um 6,8% en íbúum þar fjölgaði um 4 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Kjósarhreppi eða 4,3% en þar fjölgaði íbúum um 12 einstaklinga frá 1. desember 2023.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 24 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 40 sveitarfélögum.

Lítil breyting þegar horft er á landshluta

Aðeins er smávægileg fjölgun í sex af átta landshlutum frá 1. desember sl. Aðrir landshlutar annaðhvort standa í stað eða fækkar lítillega. Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2023.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar