Fólk13. febrúar 2024

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi 1. febrúar 2024

Alls voru 75.412 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. febrúar sl. og fjölgaði þeim um 989 einstaklinga frá 1. desember 2023 eða um 1,3%. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 193 einstaklinga eða um 0,1%.

Ríkisborgurum frá Úkraínu og Palestínu heldur áfram að fjölga. Úkraínskum ríkisborgurum fjölgaði um 158 eða 4% og ríkisborgurum frá Palestínu fjölgaði um 42 eða 7,8%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 11 og eru nú 25.623 pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 193 einstaklinga eða um 0,1%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. febrúar 2024 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2023.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

Þróun erlendra ríkisborgara

Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.  
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar