Fólk07. mars 2024

Skráning í trú- og lífsskoðunarfélög fram til 1. mars 2024

Alls voru 225.639 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. mars síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 263 síðan 1. desember 2023. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.360 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.975 skráða meðlimi.

Fjölgað mest í Siðmennt

Frá 1. desember 2023 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Siðmennt eða um 72 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá Lífspekifélagi Íslands, eða um 24,7%.

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.646 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 0,3% hækkun frá 1.des 2023. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 84.719 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2021-2023.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar