Fólk09. apríl 2024

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. apríl 2024

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.040 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2023 til 1. apríl 2024 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 250 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 22 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 90 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 101 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2023 um 10,2% en íbúum þar fjölgaði um 6 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Kjósarhreppi eða 5,1% en þar fjölgaði íbúum um 14 einstaklinga frá 1. desember 2023.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 19 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 45 sveitarfélögum.

Landshlutar

Íbúum Höfuðborgarsvæðisins fjölgar mest, eða um 0,8% svo íbúum Suðurlands og Vesturlands, eða um 0,7%. Íbúum á Norðurlandi vestra fækkar um 0,4% á tímabilinu.

Grindavík

Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 155 á tímabilinu eða um 4,2%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2023.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar