Fólk06. maí 2024

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. maí 2024

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.360 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2023 til 1. maí 2024 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 337 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 55 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 161 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 120 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Skorradalshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum Skorradalshrepps fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2023 um 18,6% en íbúum þar fjölgaði um 11 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Kjósarhreppi eða 4,7% en þar fjölgaði íbúum um 13 einstaklinga frá 1. desember 2023.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 17 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 47 sveitarfélögum.

Landshlutar

Íbúum Suðurlands fjölgar mest, eða um 1,1% svo íbúum Höfuðborgarsvæðisins og Vesturlands, eða um 1%.

Grindavík

Íbúum Grindavíkurbæjar fækkar um 266 á tímabilinu eða um 7,2%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2023.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar