Alls voru 84.470 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. apríl sl. og fjölgaði þeim um 531 einstaklinga eða um 0,6% frá 1. desember 2025.
Mest fjölgun hefur verið á ríkisborgurum frá Rúmeníu, þeim hefur fjölgað um 173 einstaklinga frá 1. des. sl. Þar á eftir koma ríkisborgarar frá Úkraínu og loks Nígeríu.
Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 930 einstaklinga eða um 0,3%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. mars 2026 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2024.
Hlutfall erlendra ríkisborgara
Þróun erlendra ríkisborgara
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.