Alls skráðu 4.544 einstaklingar flutning innanlands í mars til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 9,3% þegar 4.156 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fækkun um 5% þegar 4.769 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 3.030 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 2.699 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 410 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 309 innan landshlutans og 85 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 343 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 235 innan landshlutans en 88 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
| Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
| Höfuðborgarsvæðið | 2.699 | 70 | 57 | 24 | 11 | 36 | 21 | 112 | 3.030 |
| Suðurnes | 85 | 309 | 2 | 2 | 0 | 4 | 2 | 6 | 410 |
| Vesturland | 41 | 9 | 152 | 3 | 3 | 2 | 3 | 4 | 217 |
| Vestfirðir | 17 | 5 | 0 | 65 | 0 | 2 | 0 | 1 | 90 |
| Norðurland-Vestra | 7 | 2 | 0 | 3 | 45 | 2 | 0 | 1 | 60 |
| Norðurland-Eystra | 49 | 4 | 2 | 4 | 2 | 215 | 6 | 7 | 289 |
| Austurland | 15 | 5 | 2 | 0 | 0 | 6 | 72 | 5 | 105 |
| Suðurland | 88 | 4 | 4 | 2 | 1 | 5 | 4 | 235 | 343 |
| Alls til | 3.001 | 408 | 219 | 103 | 62 | 272 | 108 | 371 | 4.544 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.