Af þeim 4.338 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í þjóðskrá árið 2025 gengu 47,3% í hjúskap hjá Sýslumönnum, 30,2% hjá Þjóðkirkjunni, 11,2% hjá öðrum trú- og lífsskoðunarfélögum og 11,3% erlendis.
Fjöldi og samanburður við árið á undan
| Tegund |
2025 |
2024 |
Breyting |
| Þjóðkirkjan |
1.308 |
1.732 |
|
| Sýslumaður |
2.054 |
2.708 |
|
| Önnur trú- og lífsskoðunarfélög |
486 |
570 |
|
| Erlendis |
490 |
536 |
|
| Samtals: |
4.338 |
5.546 |
|
Samanburður milli landshluta
Þegar horft er á samanburð milli landshluta má sjá að miðað við hverja 1000 íbúa gengu flestir íbúar Höfuðborgarsvæðisins í hjúskap á árinu 2025, þar á eftir íbúar Norðurlands eystra og loks íbúar Norðurlands vestra.
Þróun eftir árum
Alls gengu 1.716 einstaklingar sem skráðir eru í Þjóðskrá frá lögskilnaði á síðasta ári. Þar af gengu 1.596 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni, 94 gengu frá lögskilnaði sínum erlendis og 24 fyrir dómi.
Samanburður milli landshluta
Þegar horft er á samanburð milli landshluta má sjá að miðað hverja 1000 íbúa voru flestir lögskilnaðir á Vesturlandi árið 2025, þar á eftir Höfuðborgarsvæðinu og loks Suðurnesjum.
Þróun eftir árum
Þessar tölur eru byggðar á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar einstaklinga sem skráðir eru í Þjóðskrá. Einstaklingur getur gengið í hjúskap með öðrum einstaklingi sem er ekki með kennitölu í Þjóðskrá og telur þá sá einstaklingur ekki með í tölfræðinni.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimilda.