Þjóðskrá15. maí 2026

Rafræn kjörskrá prófuð í fyrsta sinn hjá Flóahreppi í komandi sveitarstjórnarkosningum

Þjóðskrá er að þróa kerfi til að halda utan um rafræna kjörskrá. Virkni kerfisins felst í því að merkja við kjósendur á kjörstað með rafrænum hætti í stað pappírsforms sem notast er við í dag. Verkefnið er unnið í samstarfi við landskjörstjórn.

Kjósendur Flóahrepps verða þátttakendur í prófunum á rafrænni kjörskrá í komandi sveitarstjórnarkosningum þann 16. maí, næstkomandi.

Á kjördag munu kjósendur Flóahrepps mæta á kjörstað og greiða atkvæði með hefðbundnum hætti. Prófanir á rafrænni kjörskrá fara fram samhliða hefðbundinni merkingu.

Þessar prófanir eru mikilvægur liður í því að meta virkni kerfisins og verða niðurstöðurnar nýttar við áframhaldandi þróun.

Þegar fram líða stundir verður innleiðing rafrænnar kjörskrár stórt skref í átt að aukinni skilvirkni við framkvæmd kosninga.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar