Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 528 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 1. júlí 2026 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 525 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 98 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 78 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 212 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Fljótsdalshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Súðarvíkurhreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2025 um 7,5% en íbúum þar fjölgaði um 17 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Árneshrepp eða um 6,6%. Af 61 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 14 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 47 sveitarfélögum.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburður við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2025.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.