Fólk09. júlí 2026

Skráning í trú- og lífsskoðunarfélög fram til 1. júlí 2026

Alls voru 224.249 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. júlí síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og er því fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins. Næst fjölmennasta félagið er Kaþólska kirkjan með 16.064 skráða meðlimi og í þriðja sæti er Fríkirkjan í Reykjavík með 10.060 skráða meðlimi.

Fjölgað mest í Þjóðkirkjunni

Frá 1. desember 2025 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Þjóðkirkjunni eða um 193 meðlim. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá Nýja Avalon, eða um 575%.

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.942 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 96.550 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2021-2025.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar