Alls skráðu 5.284 einstaklingar flutning innanlands í júní til Þjóðskrár. Þetta er fjölgun frá síðasta mánuði eða um 6,4% þegar 4.965 einstaklingar skráðu flutning innanlands. Miðað við sama mánuð á síðasta ári er niðurstaðan fjölgun um 8,2% þegar 4.884 einstaklingar skráðu flutning innanlands.
Þegar horft er til flutninga innan og milli landshluta þá kemur í ljós að 3.382 einstaklingar fluttu lögheimili sl. mánuð á höfuðborgarsvæðinu. Af þeim fluttu 3.003 einstaklingar innan svæðisins.
Á Suðurnesjum fluttu 476 lögheimili í síðusta mánuði. Þar af fluttu fluttu 322 innan landshlutans og 121 til höfuðborgarsvæðisins.
Á Suðurlandi fluttu 427 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 317 innan landshlutans en 66 til höfuðborgarsvæðisins.
Flutningur innan og milli landshluta
| Frá / til | Höfuðborgar- svæðið | Suðurnes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland- vestra |
Norðurland- eystra |
Austurland | Suðurland | Alls frá |
| Höfuðborgarsvæðið | 3.003 | 73 | 39 | 17 | 16 | 77 | 18 | 139 | 3.382 |
| Suðurnes | 121 | 322 | 5 | 1 | 2 | 15 | 1 | 9 | 476 |
| Vesturland | 50 | 2 | 151 | 1 | 8 | 6 | 2 | 12 | 232 |
| Vestfirðir | 17 | 2 | 3 | 69 | 0 | 4 | 0 | 2 | 97 |
| Norðurland-Vestra | 17 | 5 | 2 | 0 | 42 | 7 | 3 | 3 | 79 |
| Norðurland-Eystra | 53 | 5 | 1 | 0 | 3 | 348 | 7 | 7 | 424 |
| Austurland | 25 | 0 | 4 | 2 | 0 | 7 | 125 | 4 | 167 |
| Suðurland | 66 | 12 | 6 | 3 | 6 | 9 | 8 | 317 | 427 |
| Alls til | 3.352 | 421 | 211 | 93 | 77 | 473 | 164 | 493 | 5.284 |
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.