Eftirfarandi reglur gilda fyrir íslenska ríkisborgara búsetta erlendis.
Búseta erlendis lengur en 16 ár
Eftir 16 ára búsetu erlendis þarf að sækja sérstaklega um að vera tekinn á kjörskrá hjá Þjóðskrá. Kosningaréttur gildir þá í fjögur ár í senn og þarf að endurnýja umsókn til að halda honum.
Vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst 2026 þurfti fullnægjandi umsókn um skráningu á kjörskrá að hafa borist Þjóðskrá fyrir 1. desember 2025. Umsóknir sem bárust eða voru staðfestar eftir þann tíma veita ekki kosningarétt í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Þeir sem ekki eru á kjörskrá á grundvelli umsóknar sem barst fyrir þann frest hafa því ekki kosningarétt við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst 2026. Ekki er unnt að bæta þeim á kjörskrá vegna þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu nema Alþingi samþykki sérstaka lagabreytingu.
Búseta erlendis skemur en 16 ár
Íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis skemur en 16 ár eiga almennt kosningarétt við alþingiskosningar, forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslur, að uppfylltum öðrum lögbundnum skilyrðum.
Hægt er að fletta upp hvort að þú sért á kjörskrá á „Hvar á ég að kjósa?“