Þjóðskrá06. ágúst 2026

Prófanir á rafrænni kjörskrá

Þjóðskrá býður sveitarfélögum að taka þátt í prófunum á rafrænni kjörská

Í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu verður Þjóðskrá með prófanir á rafrænni kjörskrá. Þjóðskrá hefur sent bréf til allra sveitarfélaga þar sem þeim er boðið að taka þátt í þessum prófunum.

Prófanir á rafrænni kjörskrá eru hluti af þróunarferli og er markmið þeirra að fá fram tilvik og álagsprófanir hjá notendum.

Mikilvægt er að taka fram að þrátt fyrir að sveitarfélög taki þátt í prófununum á rafrænni kjörskrá fer kosning fram með hefðbundnum hætti. Áfram er merkt við kjósendur í prentaðri kjörskrá en rafræna kjörskráin er eingöngu til prófana.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar