Þjóðskrá25. ágúst 2026

Rafræn kjörskrá - prófanir í þjóðaratkvæðagreiðslu

Þjóðskrá mun prófa rafræna kjörskrá í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst.

Þjóðskrá mun prófa rafræna kjörskrá í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst.

Öllum sveitarfélögum landsins var boðin þátttaka í prófunum og 20 sveitarfélag þáðu boðið. Í kjördeildum þeirra sveitarfélaga sem taka þátt verður tölva á staðnum til að prófa rafræna kjörskrá. Mikilvægt er að taka fram að þótt sveitarfélög taki þátt í prófununum fer kosning fram með hefðbundnum hætti. Áfram er merkt við kjósendur í prentaðri kjörskrá samhliða skráningu í rafræna kjörskrá.

Prófanirnar eru mikilvægur áfangi í áframhaldandi þróun og undirbúningi fyrir innleiðingu rafrænnar kjörskrár.

Sveitarfélögin sem taka þátt í prófunum hafa fengið kynningu frá Þjóðskrá og fá aðgang að prófunarkerfi til undirbúnings fyrir kjördag. Þessi vinna er unnin í samstarfi við landskjörstjórn.

Sveitarfélög sem taka þátt:

Sveitarfélag Kjörstaður
Akureyri Verkmenntaskólinn - 2 kjördeildir
Árneshreppur Félagsheimilið í Árnesi
Bolungarvík Ráðhús Bolungarvíkur
Dalabyggð Stjórnsýsluhús, Miðbraut 11
Dalvíkurbyggð Dalvíkurskóli
Eyjafjarðarsveit Félagsborg (Skólatröð 9)
Eyja- og Miklaholtshreppur Íþróttahúsið Laugargerði
Fjarðabyggð Eskifjörður - Kirkja
Grindavík Ásabraut 2, Grunnskóli Grindavíkur
Húnaþing vestra Hvammstangi
Rangárþing Eystra Hvoll
Heimaland
Rangárþing Ytra Grunnskólinn Hellu
Reykjanesbær
Reykjavík Álftamýraskóli
Skagafjörður
Skeiða- og Gnúpverjahreppur Þjórsárskóli
Sveitarfélagið Stykkishólmur Grunnskólinn í Stykkishólmi, Borgarbraut 6
Vestmannaeyjabær Barnaskóli Vestmannaeyja
Þingeyjarsveit Breiðamýri
Sveitarfélagið Ölfus Grunnskólinn í Þorlákshöfn

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar