Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 316 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 1. september 2026 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 615 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 157 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 360 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 301 íbúa.
Fjölgar hlutfallslega mest í Árneshreppi
Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Árneshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2025 um 9,8% en íbúum þar fjölgaði um 6 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Grýtubakkahreppi eða um 5,5%. Af 61 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 17 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 44 sveitarfélögum.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburður við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2025.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.