Fólk07. október 2026

Fjöldi íbúa eftir sveitarfélögum 1. október 2026

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 278 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2025 til 1. október 2026 og íbúum Hafnarfjarðar fjölgaði á sama tímabili um 682 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 198 íbúa, í Reykjanesbæ hefur fækkað um 306 íbúa og í Sveitarfélaginu Árborg fjölgaði um 302 íbúa.

Fjölgar hlutfallslega mest í Árneshreppi

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Árneshreppi fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2025 um 11,5% en íbúum þar fjölgaði um 7 íbúa. Hlutfallslega fjölgaði íbúum næst mest í Kaldrananeshreppi eða um 9,8%.  Af 61 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 19 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 42 sveitarfélögum.  

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburður við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2025.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar